Forsíða

Um fyrirtækið

Stofan hefur verið starfrækt frá 1994

Á stofunni starfa Guðmundur Ásgeir Björnsson munn & kjálkaskurðlæknir og Olga Hrönn Jónsdóttir tannlæknir á lokaári í munn & kjálkaskurðlæknanámi í Noregi.

Þeim til aðstoðar starfa á stofunni tveir tanntæknar, Dagmar Lárusdóttir og Birna Sif Sigurðardóttir.

Guðmundur Ásgeir Björnsson

Er stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1982.
Útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands 1988.
Lauk sérfræðinámi í munn &-kjálkaskurðlækningum frá Háskólanum Í Osló 1994. Rannsóknarstyrkþegi við Háskólann í Osló 1995-1999.

Dr. odontologie frá Háskólanum í Olsó 2004.
Starfað við sérgreinina í Oslo, Árósum, Drammen og Tönsberg.
Rekið stofu við sérgreinina í Reykjavík frá 1994.
Lektor við Tannlæknadeild Háskóla Íslands 2007-2011.
Sérfræðingur við Landspítalann frá árinu 1998.

Hlutastöðu sem aðstoðarprófessor við Háskólann í Osló frá 2016
Guðmundur er meðlimur í norsku, íslensku, norrænnu og alþjóðlegum samtökum kjálkaskurðlækna.
Er stjórnarmeðlimur í norrænum samtökum kjálkaskurðlækna.

Olga Hrönn Jónsdóttir

Er stúdent frá Menntaskólanum við Sund 2004.
Útskrifaðist frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands 2012.
Lýkur sérfræðinámi í munn- og kjálkaskurðlækningum frá Háskólanum í Osló 2021.

Hefur starfað við sérgreinina samhliða sérfræðináminu í Oslo, Drammen og Lillestrøm.
Olga Hrönn hefur starfað á stofunni í Álftamýri frá  2018.

Er meðlimur í íslensku, norsku, norrænu, evrópsku og alþjóðlegu samtökum kjálkaskurðlækna.

Olga Hrönn Jónsdóttir hefur starfað eingöngu við munn- og kjálkaskurðlækningar frá árinu 2015 og líkur hún sérfræðinámi frá Osló 2021. Hún hefur starfað samhliða sérfræðináminu á Íslandi og í Noregi.

 

Helstu aðgerðir

Á stofunni eru framkvæmdar allar helstu aðgerðir sem viðkoma munnholi og kjálkum svo sem endajaxlatökur, ísetning tannplanta og kjálkatilfærslur svo fátt eitt sé nefnt.

Flestar aðgerðir eru framkvæmdar í staðdeyfingu en einnig er boðið upp á slakandi lyf og jafnvel svæfingu. Svæfingarlæknir stofunnar er Jón Bragi Bergmann og með honum er svæfingar hjúkrunarfræðingur Ása Margrét Ásgrímsdóttir.

Tækjabúnaður

Stofan er búin einu fullkomnasta röntgentæki frá Sirona sem bæði myndar venjulegar röntgenmyndir og þrívíddar röntgenmyndir (CBCT). Við erum í samstarfi við Ingibjörgu Söru Benediktsdóttur tannlækni og sérfræðing í myndgreiningu munns & kjálka sem les úr myndum þegar á þarf að halda.

Tímabókanir og almennar fyrirspurnir

Tímabókanir fara fram í gegnum síma 588-6650
Almennum fyrirspurnum er svarað í síma 588-6650 og á netfanginu gab@lifsteinn.is

Stofan hefur starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar.